Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008

Gleðileg jól allir saman, það er komin jólastund

Jæja þá er jólahátíðin alveg að ganga í garð, bara einn jólasveinn eftir að koma til byggða.  Nú er tíminn til að njóta þess sem eftir er af aðventunni og ljósanna og friðarins á jólunum. Það þýðir ekkert að vera með stress yfir þessum stutta en góða tíma, það koma  jól þrátt fyrir allt,  hvort sem árinu hjá  okkur var sorg eða gleði, eða hvort sem við náðum þeim árangri sem við ætluðum eða hvort sem við náðum að þrífa eða baka eins mikið og okkar mæður og ömmur sem töldu það vera nauðsyn að það yrði allt að vera tandurhreint og nánast fullkomið fyrir jólin. Ekki er það alveg það sem gildir,  heldur frekar hvernig manni líður og að maður nái að hvíla sig og slaka á og eiga góðar stundir með fjölskyldunni. Allt þetta stress fyrir jólin er í raun bara óþarfa álag sem tekur svo enda á aðfangadagskvöld og þá er fólk oft svo þreytt að það nær ekki að njóta. Það var ekkert bakað á mínu heimili núna, og ekki er mikið þrifið, reyndar er allt nýtt en það er töluvert smíðaryk svífandi yfir ennþá og það er bara allt í góðu. Frumburðurinn komst fljúgandi til okkar í gær og fórum við mæðgur í jólaverslunarleiðangur í borginni í gær, svaka gaman, en hamingjan hjálpi mér hvað umferðin var þung, ég gæti ekki búið við þetta. Nú eru bara nokkrar jólagjafir eftir, ég er að vinna í dag Þorláksmessu og líka á morgun aðfangadag til hádegis svo er það jólafríið. Dejligt.

Jólakveðjurnar farnar að hljóma í útvarpinu og skötufnykurinn fer um allt þangað til hangikjetið tekur yfir og jólatréð verður skreytt og jólaísinn búinn til .......... nammm.

Njótið kæru vinir.

pink-christmas-tree

Kæru vinir, ég og fjölskylda mín óskum ykkur gleðilegra jóla og heillaríks komandi árs og þakka ykkur fyrir að lesa bloggið mitt og vona að þið haldið því áfram og hafið það gott. 

Jólablómið

 


Ekki fólkið á bak við tjöldin

Nýjustu fréttir úr svarta húsinu á horninu sem átti að vera hvítt  Cool

Við erum ekki lengur fólkið á bak við tjöldin, við erum FLUTT í næstu álmu, sem sagt eigum svefnherbergi núna, við erum búin að sofa í þrjár nætur, prinsinn okkar sefur eins og hetja í sínu herbergi í nýja rúminu, loksins laus við þessa truflandi foreldra, mér leið eins og ég væri á fínu hóteli fyrstu nóttina sem við sváfum í okkar herbergi,  jiii hvað þetta var allt flott og fínt, ég skellti í gardínur og alles á no time, nú er svaka spenningur hjá prinsinum að vita hvað jólasveinninn setur í skóinn, vaknar eldsnemma og er svo hissa á þessum sveinum hvað þeir eru nú góðir. Við vorum í dag að klára smá í unglingsins herbergi og fer hún fljótlega að flytja í sitt endanlega herbergi, því Gullrassinn okkar fer að koma "heim" í jólafrí og fær þá sitt nýja herbergi sem hefur verið notað sl. mánuði, það verður gaman að fá hana og hafa alla fjölskylduna samankomna undir sama þaki, mér líður alltaf svo vel í hjartanu þegar allir ungarnir mínir eru í hreiðrinu.

Ég fór í Laugardalshöllina í gær með "fína fólkinu" Errm  að sjá og hlusta á Frostrósir, það var æðislegt að heyra goðið mitt hana Margréti Eir syngja með sinni kraftmiklu og hrífandi rödd, vá hvað hún er langbest af þeim sem voru þarna, ég bý til sér færslu um þetta kvöld, ég skal ekki gleyma því.

Styttist í jólin og ég er ekki búin að baka eitt korn, vegna þess að ég á ekki (jú ég á en hann er ennþá í umbúðunum) bakaraofn, og ég á eftir að skrifa á öll jólakortin líka, vona að ég neyðist ekki til að sleppa þeim í ár. Þetta reddast allt saman. Koma tímar, koma ráð.

Gullrassinn okkar náði öllum prófunum í skólanum og er laus við stærðfræði að mér skilst, vá hvað það hlýtur að vera mikill léttir.

Jæja best að fara að halla sér á Hótel Klöpp hehe Joyful.

Knús til þín frá mér.

Blomst

 


Allt að koma

My Pictures0050

Prinsinn minn á leið í afmæli

My Pictures0056

Herbergi okkar hjóna í dag

My Pictures0058

My Pictures0062

Vantar hjónarúmið

My Pictures0065

Ég fann fínar gardínustangir í RL, kostuðu 3.990 kr. stykkið, skítt með það.

Ég nennti ekki að skrifa núna í kvöld, setti myndir í staðinn, og þið sem hafið aðgang að síðu prinsins þar eru fleiri nýjar myndir.

Þreytta blómið sem er alveg að fara í varanlega næringu.


Veljum íslenskt við getum ekki annað

Jerimías og jólaskór hvað allt er orðið dýrt í dag, ég var að fletta í gegnum jólagjafa handbækur Kringlunnar og Smáralindar og guð minn hjálpi mér, er ég orðin svona mikil nánös eða eru þetta bækur "ríka" fólksins, allavega er það stefnan hjá mér og minni fjölskyldu að kaupa litlar jólagjafir þessi jólin (ennþá minni en venjulega) Tounge vegna þess hve allt hefur hækkað. Tökum dæmi sem var reyndar ekki í þessum bókum: af hverju eru ekki framleidd íslensk dömubindi ? Ég þurfti að kaupa svoleiðis í gær og fór í Samkaup Strax, mjög fín hverfisbúð hér, því klukkan var orðin átta, vitið þið hvað einn venjulega einfaldur pakki af dömubindum með vængjum kostaði ?  650 - 700 kr. kostaði áður innan við 500 kr. Svo var ein vinkona að segja mér frá því að verkjatöflur svona venjulegar Panodil eru núna helmingi dýrari en Paratabs sem eru framleiddar hér á Íslandi, svo ef þið þurfið verkjalyf, veljið Paratabs. Svona mætti lengi telja, mér finnst sorglegt hvað við erum háð innfluttu vörunum og í raun svo fátt sem við framleiðum sjálf.

Það komu hérna skilaboð um daginn, Gilmar takk fyrir skilaboðin, gaman að þú skildir snusast hérna inn á, það var nú oft gaman hjá ykkur Hylfa og mér hérna í gamla daga, og hann þakkar fyrir myndbandið, hafðu endilega samband næst þegar þú ert að snusast á Skaganum Cool.

Ég hef verið löt að blogga vegna anna, þetta er rosalega gaman að sjá húsið verða húslegra,  búið að mála og parketleggja öll herbergin komin svaka skápur í hjónaherbergið og skápurinn hjá einkasyninum er að koma líka, svo vantar dósir og innstungur og ljós, svo er það sjónvarpsholið, á leiðinni í að parketleggja það,  þetta kemur allt saman.

En ég er í vandræðum með gardínustangir, var búin að ákveða að kaupa ódýrar í Ikea en vegna þess að þær eru innfluttar þá eru engar stangir til í Ikea, hvar á ég að kaupa þær ? Ég tími ekki að kaupa dýrar þetta eru svo margir gluggar. Einhverjar hugmyndir og reynslusögur??

Blómið

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband