25.5.2010 | 19:00
Korter í Eurovision, áfram Ísland
Já góða kvöldið, hér er enn smá líf, ég gat nú ekki sleppt því að setja inn eins og eina færslu þegar það fer að nálgast evróvision keppnina í Oslo.
Gullfiskurinn okkar hann Majas á einmitt afmæli í dag, er orðinn 8 ára og er stór, syndir í krukku og er mjög mannblendin og skemmtilegur fiskur. Það hafa verið skiptar skoðanir með aldurinn á honum, en hann er allavega 8 ára, ég fann mynd sem var tekinn af honum í ágúst 2002, þá var hann hjá okkur, kannski er hann eldri.
Ég er komin í Eurovision gallann.
Jæja ég skrifa þetta í áföngum og get ekki dregið þetta lengur því forkeppnin er í kvöld, við erum nr. 17 og síðasta landið sem stígur á svið.
Ég var ekkert yfir mig hrifin af laginu okkar þegar það vann forkeppnina hér, en ég veit að Hera Björk er stórgóður flytjandi, það er spurning hvað það fleytir okkur langt. Ég var ekki bjartsýn í fyrra ef ég man rétt þegar Jóhanna Guðrún söng Is it true, ég var persónulega ekkert hrifin af því lagi, en hún kom okkur alla leið í annað sætið. Svo ég verð að segja að það getur allt gerst miðað við vinsældir íslenska hópsins og mikla landkynningu með ís og elda.
Tek það fram að ég hef ekki séð neina veðbankaspár, þetta er eingöngu mitt álit :)
1. Run Away - Moldova 2010 - SunStroke Project & Olia Tira -
Já já, ágætur hittari, trúi að þetta komist áfram og það var rétt hjá mér
2. Lost and Forgotten Russia - Peter Nalitch Band
Hjálpi mér hamingjan, hef ekki smekk fyrir þessu, ekki alveg öruggur á tónunum söngvarinn en Rússland kemst örugglega áfram þrátt fyrir skrítið lag.
og það var rétt hjá mér
3. Siren - Estonia - Malcolm Lincoln
Veit ekki......hmmmm.....mjög spes lag, held að þetta komist ekki áfram
og það var ekki rétt hjá mér það komst áfram
4. Horehronie - Slovakia - Kristina Pelakova
Það er eitthvað við þetta lag, vel flutt held að það komist áfram.
og það var ekki rétt hjá mér það komst ekki áfram
5. Työlki Ellää- Finland - Kuunkuiskaajat
Of tilgerðarlegt, samt hresst lag og fínar stelpur, held að þetta fari ekki áfram
og það var rétt hjá mér
6. What For?- Latvia - Aisha
Já þetta er ágætur smellur, og nútímalegur, þetta kemst áfram
og það var ekki rétt hjá mér það komst ekki áfram
7. Ovo Je Balkan- Serbia - Milan Stanković
Nei nei nei, er ekki hrifin, vill ekki að þetta fari áfram
og það var ekki rétt hjá mér það komst áfram
8. Thunder And Lightning - Bosnia and Herzegovina - Vukain Brajić
Rokk og ról, mmmmmm.....ágætlega flott lag og góður kraftur, ég segi já...að þetta fari áfram og það var rétt hjá mér
9. Legenda- Poland - Marcin Mroziński -
Undarleg lagasmíð, drama drama, hef ekki trú á þessu. og það var rétt hjá mér
10. Me And My Guitar- Belgium - Tom Dice
Já, einlægt og fallegt lag, veit ekki, þetta er alveg á miðlínunni :) bæði mínus og plús
og það var rétt hjá mér
11. My Dream - Malta - Thea Garrett
Mér finnst þetta ágætt, hef á tilfinningunni að hún sé dáldið stressuð og nær ekki að túlka nóg, held að þetta skili sér ekki
og það var rétt hjá mér
12. It's All About You - Albania - Juliana Pasha
Júhú...geggjað stuð í þessu lagi, vá, minnir á lagið okkar, í krafti og nútíma, já áfram...
og það var rétt hjá mér
13. OPA - Greece - Giorgos Alkaios & Friends
Harðir naglar, vekur athygli, gengur ekki Grikklandi alltaf vel ? Ekki samt að mínu skapi.
og það var rétt hjá mér
14. Há Dias Assim- Portugal - Filipa Azevedo
Hvert fór píanóleikarinn ? Þokkaleg ballaða, vel flutt, alveg á miðlínunni, bæði mínus og plús
og það var rétt hjá mér
15. Jas Ja Imam Silata- F.Y.R. Macedonia - Gjoko Taneski
Æji, týpísk júróvision uppskrift frá Makedóníu, og þó þegar kemur inn í lagið byrja þeir að rappa og þá skánar lagið mikið, er ekki rapp í tísku ??? Jú svei mér þá, þetta lag vinnur á, jú jú það fer áfram.
og það var ekki rétt hjá mér það komst ekki áfram
16. Butterflies - Belarius - 3+2
Fallegt lag, átta mig ekki alveg á þessu, jú flott held ég, áfram já...
og það var rétt hjá mér
17. Je Ne Sais Quoi- Iceland - Hera Björk
Okkar lag, jú alveg rosalegur kraftur í þessu miðað við mörg hin, áfram Ísland
og það var rétt hjá mér
Þessi færsla er gerð á hálftíma, korter í Eurovision undankeppni 25. maí 2010, en lagið sem ég held mest með í þessari keppni er Danska lagið, vá þvílík útgeislun og frábært lag, vona að þau vinni, ef við vinnum ekki (sem við gerum ekki).
Er farin að horfa, yfir og út....
Euro blómið
Athugasemdir
Flott færsla mamma, þetta verður spennandi :) Við höldum sko með danska laginu!! þau eru æðislegt :) Ég er spennt !
Andrea (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 19:07
Fínt að fá þennan lista og kommentin þín ... ég hef nefnilega ekkert fylgst með þessu, sem er óvenjuleg hegðun að minni hálfu því ég er mikill Júróvisjónsinni, og er spenntur að sjá hversu vel þú hefur gert það!
ps. Sendi mannblendna gullfiskinum Majas hamingjuóskir með daginn.
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 19:17
Held að lag okkar Dana komist ekki langt ef þau verða ekki betri en a æfingunum
Jón Arnar, 25.5.2010 kl. 19:34
YESSSS!!!
Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 25.5.2010 kl. 21:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.