13.8.2008 | 23:15
Hárið, þá má flétta í þvottasnúrur gaddavír, spagetti :)
Ég er búin að panta mér klippingu á föstudaginn kl. 15 og þarf á hjálp ykkar að halda, er búin að vera að vandræðast með hvernig ég eigi að hafa hárið, mig vantar svo ráðleggingarnar hennar Sillu, Silla ef þú lest þetta, hjálp........ Silla er sko hárgreiðslu-specialistinn minn að vestan.
Ég er búin að vera að safna í ár svona óbeint, bara Silluleysi eiginlega og hef nánast aldrei haft hárið svona sítt , (sítt á minn stutta mælikvarða). Svo nú er það bara, á ég að halda áfram að safna og láta bara móta einhverja línu á það????
Svona lítur það út núna mynd nr. 1 og 2 er núna.
Mynd nr. 3 tekin í byrjun júní sl. eftir smá klippingu og þynningu.
Mynd nr. 4 tekin í apríl sl. á leið milli DANMARK OG SVERIGE.
Mynd nr. 5 tekin í mars sl. við fermingu Fríðu, Andrea er með mér.
Mynd nr. 6 tekin í nóvember 2006.
Hún spyr mig því........hefurðu þetta strý.......hárprúður hátt sem lágt, hár dag sem nátt, á mér er hár sem hey, hvers vegna veit ég ei, það er ekki útaf aurunum, eins og hjá poppurum....elskan.......á mér er haus með hár, herðasítt hár, úfið snúið undið bundið lúið, ég vil láta lubbann lafa niðrá axlir, hingað og þangað og út um allt vil ég hafa hár...............
Stelpur munið þið................snilldar lag og texti.
Hvað á ég að gera, endilega kommentið þið og segið ykkar skoðun, persónulega finnst mér það fara mér best að hafa ekki hár fyrir eyrunum, tell me ............ svo væri þá hægt ef ég safna að taka það frá andlitinu og vera með tagl eða klemmu að aftan. Svo er nú svo þægilegt að hafa það stutt .
Allt í gúddí að frétta hjá mér og mínum.
Heyrumst elzkurnar.
Hár-blómið á Klöpp
Athugasemdir
Hm, ég sem kommentaði um hárið á þér í síðustu færslu, finnst mjög töff eins og það er núna!!! En kannski erum við bara ekki með sama smekk. Mér finnst þú líta rosalega vel út á þessum myndum. Hef reyndar aldrei séð þig með svona mikið hár. Mannstu þegar þú greiddir í gosbrunn? fyrir XX mörgum árum síðan.
Annars held ég að þú dettir ofan á eitthvað geggjað, eins og þú gerir alltaf.
Heyrumst
Sóley
Ísbjörn, 14.8.2008 kl. 09:13
Ég þarf aðeins að hugsa þetta... mér finnst hárið á þér í nóv 2006 rosa flott en líka flott að sjá það svona sítt einu sinni. Læt þig vita.
Ég vil það bærist í blæ, berist langt út á sæ, þvælist um borg og bæ þetta hár, lifa þar lýs, litlar og sætar mýs fær það einnig hýst, engin orð fá lýst þeirri unun og undri þess að hafa háááár.......
Ég vil það sítt. strítt, saurugt, aurugt, siðlaust, friðlaust, sléttað, fléttað, lúið, snúið, lamið, hamið, liðað, friðað, slitið, bitið, úfið bæði og undið, alfrjálst eða bundið, þvælt og bælt og þá má flétt'í þvottasnúrur, gaddavír spaghettííííí....
Hilsen
Dæs
Dizzy (IP-tala skráð) 14.8.2008 kl. 12:03
Jibbí, Dizzy ég beið eftir þessu, vissi að þú mundir botna lagið úr hárinu, það er þín sérgrein þessi texti. Láttu mig vita með hárið.
Arndís Baldursdóttir, 14.8.2008 kl. 13:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.