Á hjólum

Barnavagnatíska er eitthvað sem mér finnst gaman að fylgjast með, ef ég væri með nýfætt barn og væri hrikalega efnuð (glætan spætan) þá mundi ég örugglega eiga svona fjóra vagna og fjórar kerrur. Þessi áhugi minn á þessum farartækjum er held ég meðfæddur, ég t.a.m. settist fyrst undir stýri og ók nærri því niður litlu bröttu Urðarvegsbrekkuna á milli tveggja og þriggja ára aldurs. Svo þegar mamma fór að kaupa stundum pöntunarlistana eins og Quelle og Freemans þá voru einu síðurnar sem ég lá í að skoða voru síðurnar með barnavögnunum og kerrunum. Þannig að snemma beygist krókurinn og ég elska bíla og barnavagna. Skrítin skrúfa ég.

Brio_To-Go

 

Ég á núna einn vagn sem er orðinn bráðum 18 ára gamall og er hann í upprunalegum kassa og er tekinn upp og bónaður reglulega. Þetta er hann:

Silver Cross

Svo á ég þessa kerru líka:

Safety first kerra

Og líka þessa:

Basson

Ég ætla að geyma þetta allt saman á meðan ég hef pláss.

Skrítna skagastúlkan Blush

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta á eftir að koma að góðum notum þegar barnabörnin fara að koma í heimsókn , vona að það verði nú ekki alveg á næstunni samt. Ætla nú ekki að fara að hanga með einhverri ömmu get ég sagt þér hahahah .

Hilsen

Dizzy

Dizzy (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 13:43

2 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Hahaha, já glætan að þú látir sjá þig með svona gömlum konum.  En þegar barnabörnin koma eftir mörg ár vonandi þá koma þau í antik-vagninn og kerrurnar hjá ö-Addý, frekar lummó. Nema að Addý verði þá tilbúin að endurnýja þá árgerð af vagni svona upp á grínið. Sko Simo eða Brio 2015.

Arndís Baldursdóttir, 12.9.2008 kl. 14:41

3 identicon

Jesús stelpur mínar, voða eruð þið smart að ræða barneignir mínar á netinu hahah, nei segi svona. En þegar að þessu kemur verður Silfurkrossinn orðin svo antík að ég fæ örugglega nokkrar millur fyrir að láta sjá mig með hann ;)

 Mamma þú ert æði :) Love you :*

andrea (IP-tala skráð) 12.9.2008 kl. 23:10

4 Smámynd: Ísbjörn

Mannstu eftir bleiku kerrunni sem þú áttir? Hún er enn í notkun, næstum á hverjum degi, á Eyrarskjóli.

Kv Sóley

Ísbjörn, 13.9.2008 kl. 23:53

5 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Ójá, ég man sko eftir þeirri draumakerru af gerðinni Simo 1989-1990, hún skipar alltaf stóran sess hjá mér, ég var einmitt að reyna að finna mynd af svoleiðis kerru á netinu , en fann ekki.

Arndís Baldursdóttir, 16.9.2008 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband