Dýrtíðin á Íslandi

Góðan daginn ef það er einhver eftir sem les þetta Cool

Sparnaðarráð sem ég sá á er.is veit ekki hver er höfundurinn en sumt af þessu ætti maður að fara að prófa held ég.

-Þegar maður ferðast með strætó og á hvorki strætómiða né kort er ágætt ráð að borga farið með tíköllum. Þá tekur bílstjórinn ekki eftir því þó að það vanti tvo eða þrjá tíkalla upp í rétt fargjald. Þannig er hægt að spara allt að 30 krónur í hverri ferð - og safnast þegar saman kemur!


-Baka brauð.
Nýta afganga.

Ef þú ert reglulega að henda einhverju t.d. áleggi, skipta pakkanum upp í smærri einingar og setja eitthvað í frystin. Eins með ost, kaupa stór stykki og skipta upp, hafa eitt stk í notkun og restina í vel lokuðum pokum í ísskápnum, þá verður osturinn síður gamall... Ef þú átt lítinn ostbita eftir sem er farin að eldast, skerðu hann í teninga og settu í frystinn, getur notað í ostasósur eða sett í muolinexið og búið til rifin ost ofan á pizzu og eða ofnrétti.

Nýta tilboðin.

Kaupa skvísu (flösku með röri) í apótekinu fyrir barnið/börnin þá er maður alltaf með eitthvað fyrir þau að drekka og getur fyllt á með vatni, og losnar við að kaupa svala eða slíkt í bæjarferðum (safnast þegar saman kemur :) ).

versla á föstudögum því þá eru flestar búðir með helgaraflætti.
og hægt að gera góð kaup.

frysta afgangshafragraut og þegar þú ert komin með smá slatta, nota í muffins; var að prófa þetta fyrir nokkrum dögum og heppnaðist mjög vel.

-Skera appelsínubörk í ræmum og búa til sælgæti.

-Búa til sína eigin jógúrt úr nýmjólk eða léttmjólk; hef gert þetta og jógúrtin er mjög góð.

-Þær sem nota moppu (til að sópa). Í stað þess að kaupa alltaf bláu klútana, þá er hægt að sauma einn (eða fleiri) úr óbleiktu lérefti ( eða bara hvaða efni sem maður á).

-Sauma náttföt á börnin úr gömlum bolum.

-Breyta buxum í pils


-Skera kremtúpur og flöskur í tvennt til að ná afganginum út. Spurning líka um að þynna sjampó með vatni, hef ekki enn prófað það.

-Nota ólífuolíu sem body lotion (ég læt uppáhaldslyktina úr Body Shop út í til að fá smá ilm af olíunni, en það þarf ekki)

-Rífa bleyjur niður til að þvo barnarassa eftir bleyjuskipti

-Sjóða niður mikið af spagetti/pizzusósu í einu til að eiga. Þetta sparar aðallega tíma, sérstaklega ef maður á birgðir af (heimatilbúnum) pizzum í frysti.

-Nota ónýta jógúrt og súrmjólk í brauð.

-Ef ostur er á tilboði. Birgja sig upp og rífa niður og frysta. Smjörstykki má líka frysta ef þau eru á tilboði.

-Þegar smjörið er búið, geyma bréfið og nota þegar þarf að smyrja form.

-Nota gluggaumslög sem risspappír. Endilega endurnýta önnur umslög, það má vel líma yfir nafnið framaná.

-Klippa sjálf hárið á börnunum.

-Fara í gönguferðir eða sund sem líkamsrækt.

-Útbúa klaka fyrir börnin annaðhvort úr safa(kannski þynntum) eða djúsi.

-Morgunkorn er dýrt. Nota frekar hafragraut og bragðbæta með kanil, rúsínum, eplabitum, sólblómafræum, möguleikarnir eru endalausir.

Þynna uppþvottalöginn með vatni, eiga tvo brúsa og nota annan sem áfyllingu á hinn og bæta vatni við.
- Kaupa áfyllingu á mýkingarefnið og fylla x2 -x3 á brúsann með því.
- Aldrei að henda matarafgöngum, alltaf hægt að búa til ofnrétti eða eggjakökur úr þeim, bæta bara við sósum/osti.

-geri matseðla fyrir mánuðinn og geri ein STÓR innkaup í byrjun mánaðar; sæki svo bara mjólk, grænmeti og ávexti þess á milli
-baka allt brauð sem er borðað á heimilinu

Ég finn alveg svakalega fyrir því hvað allt hefur hækkað, hlutir eins og shampoo og dömubindi fara að verða munaðarvörur og margar aðrar vörur. Þetta er ekki gott.

Allt í góðu annars hér, við erum orðin 5 í heimili aftur, svaka góð tilfinning að hafa alla ungana undir sama þaki.

Ég fer alveg að byrja í söngnáminu og hlakka mikið til að gera eitthvað fyrir sjálfa mig.

Kveðja

Blomst


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kærar þakkir fyrir virkilega upplífgandi pistil. Vonandi koma fleiri.

Þú skolar náttúrulega sjampoo flöskuna og notar kannski ódýrasta sjampooið í fyrsta þvottinn ef þú þværð hárið tvisvar?

Sjálf hef ég "sérhæft" mig í súpugerð, brauðbakstri, nýtingu afganga og nota þá líka oft allskonar krydd til að punta upp á ódýra magafyllingu eins og hrísgrjón og spaghetti.

EN að svindla í strætó eða skila ekki mismuninum ef ég fæ of mikið til baka í búðinni myndi ég aldrei gera. Trúlega er ég óttalega gamaldags en mér finnst það vera það sama og að stela.

Agla (IP-tala skráð) 12.9.2009 kl. 15:24

2 Smámynd: Ísbjörn

Flottur pistill hjá þér Addý!

Ég geri sumt af þessu en ekki nærri því allt. En góðar athugasemdir eigi að síður.

Gaman að sjá færslu frá þér. Ég kíki alltaf annað slagið inn til að sjá hvort það sé komið eitthvað nýtt.

Kv Sóley

Ísbjörn, 17.9.2009 kl. 09:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband