Helgin var góð

Ég var komin með leið á þessu bloggi hér fyrir neðan og ákvað að skella inn einni snöggri færslu.  Helgin var bara mjög skemmtileg og þægileg, fórum á Sólarkaffið á Broadway á föstudag, það var mjög gaman og mörg andlit sem maður kannaðist við. Laugardagurinn var rólegur og góður hjá mér og börnunum en húsbóndinn hamaðist við að setja ull í loftið í húsinu okkar. Svo fékk ég boð um teboð hjá Heiðu og ég skellti mér aftur í borgina á laugardagskvöldið með  Sóley, við fórum til Heiðu og það var svo gaman að hittast loksins, það vantaði reyndar tvær gellur. Sunnudagurinn var svo leti, fór reyndar smá stund upp í hús til að hjálpa húsbóndanum að sópa og taka til.

Nenni ekki meiru í bili.Sick


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk fyrir síðast kæra vinkona. Helgin var frábær og við hittumst bara tvo daga í röð, vorum ekki svona duglegar þegar við bjuggum í sitt hvorri götunni. Teboðið var bara frábært!

Sjáumst næst þegar ég kem í snjóinn.

Sóley Vet (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 16:23

2 identicon

Bra að kvitta fyrir komuna

Rúna (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 11:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband