Eurobandið fer til Serbíu í maí : )

Skipuleggjendur Laugardagslaganna í Sjónvarpinu mega ver stolt af þættinum í kvöld, opnunaratriðið var STÓRKOSTLEGT, ég hélt ég myndi missa húðina, svo mikil var gæsahúðin þegar Páll Óskar og co. komu með lögin okkar í syrpu, vá hvað sviðsmyndin var flott, hreint út sagt æðislegt.

Ég var nú frekar sannspá fyrir úrslitunum í hugleiðingum mínum hér fyrir neðan. Ég er sátt við úrslitin, Eurobandið stóð algjörlega upp úr og gott að náðu sigri, þó fannst mér allir mjög góðir nema Dr. Spock og Merzedes Club, þetta sándaði ekki nógu vel hjá þeim því miður. Ragnheiður Gröndal var æði og líka Davíð Olgeirs. algjört æði, vel flutt hjá þeim.

Algjör veisla fyrir íslenskt söng- og tónlistaráhugafólk.

Takk fyrir migGrin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ Addý

ég er algjörlega sammála þér með þetta allt saman stórkostlegt sjóv

kv Hrafnhildur grasekkja 

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 10:17

2 identicon

Algjörlega sammála með medley-ið í byrjun.. Getum við ekki bara sent það til Serbíu

Bið að heilsa prinsinum

Tinna (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 13:57

3 identicon

Ég kættist mjög þegar tilkynnt var að Hó hó hó væri í öðru sæti, svo mikið að mér var eiginlega bara sama um restina. Það vann allavega ekki. Eurobandið valtaði yfir þau á endanum með miklum stigamun skilst mér.

Hilzen

Dizz 

Dizzy (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 15:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband