29.9.2008 | 14:02
Flísar
Við vorum rosalega dugleg um helgina, flísalögðum nærri stærstu hliðina á húsinu.
Svo meiddi vinur hans Baldurs sig og ég hljóp af stað og datt kylliflöt, þegar ég felldi mig á bandi á leiðinni. Svo ég er með bólginn ökkla í dag og er heima í fríi því það er starfsdagur í leikskólanum hjá Baldri. Maður raðar bara í sig bólgueyðandi töflum og fer út að flísaleggja á eftir. Nota veðrið . Langt síðan maður sá þessa gulu síðast.
Svo fer næsti herðapúðapoppari að detta inn, líklega í kvöld barasta.
Blomst
Athugasemdir
Hæ hæ Addý mín
rosalega er húsið að verða flott, en leitt með ökklan láttu þér batna
heyrumst
Hrafnhildur (IP-tala skráð) 29.9.2008 kl. 15:43
Duglegt ertu!!
Fékk mitt hús bara með tilbúinni klæðningu að utan. Sem betur fer, hefði aldrei nennt þessu!
Batn batn í ökklanum.
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 29.9.2008 kl. 21:15
Á maður ekki bara að segja að fall sé fararheill . Þú slappst vel, Gulli bróðir datt um daginn og tognaði svo illa að hann má helst ekki stíga í fót í 2 vikur, skrönglast um á hækjum.
Hilsen
Dizzy
Dizzy (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 08:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.