Bloggfærslur mánaðarins, september 2008

Kan jeg stole po dig

Vá, ég ætla að kaupa borðstofuborð þegar ég flyt inn í dýrðina, því ég á ekki borð (borðið okkar skemmdist í flutningi og brotnaði að hluta núna í júní), ég er búin að finna draumaborðið og svo er útsala á stólum á sama stað og ég er heit fyrir því að skella mér á stóla líka, það er nú ekki eins og við eigum einhverjar  mublur, fólk er hissa á hvað búslóðin okkar rúmast vel í bílskúrnum með okkur, enda eru það bara tveir sófar og kassar og dót.

Hvað finnst þér?

Hér er borðið  http://egodekor.is/item.php?iditem=48

Svo eru það stólarnir, þeir verða með ljósum fótum.

Stóll 1:   http://egodekor.is/item.php?iditem=312

Stóll 2:  er að spá í ljósan svona http://egodekor.is/item.php?iditem=320  eða á ég að fá mér    brúnan ?

Stóll 3: http://egodekor.is/item.php?iditem=101

Snilldar búð.

Mér finnst stóll nr. 1 mjög flottur en ég er eitthvað smeyk við að fá leið á tölunumUndecided

Hvað finnst þér ?  Kostir og gallar ?

 

Brjálaða Bína Halo


Innskot

Hej

Ég ætlaði bara að láta ykkur vita að það eru komnar nýjar myndir á www.barnanet.is/baldurfreyr  fyrir ykkur sem vitið lykilorðið.

Myndir af fyrsta skápnum í húsinu og hurðum ofl.

IMG_1998  IMG_1993  IMG_1991

Forstofa            Litla bað                í forstofu

 

Blomst


Blanko

Var búin að skrifa langa og flotta færslu um helgina, er farin í fýlu af því að ég rak mig í einhvern takka og allt fór út.

Ætla að jafna mig.

Er svekkt, en ég hlýt að fá skrif-andann yfir mig aftur seinna.

Nenni ekki meiru í kvöld.

B


Aldur og ævi

Kisuglegaugu 1958

Þessi mynd af mér á að hafa verið tekin af mér árið 1958, mér finnst ég alveg svakalega lík mömmu á þessari mynd.

Algjör snilld, svo er hér önnur frá 1996

Addý 1996

Og ein i viðbót frá 1986

Addý 1986

Prófaðu bara sjálf/ur  http://yearbookyourself.com/

 


Dagbókarfærsla frá mömmu Emils í Kattholti

"Guð hjálpi mér með þennan dreng"  Eitthvað á þessa leið skrifaði mamma Emils á sínum tíma í ævintýrinu. Ég er oft að grínast með þetta og segi þetta líka. Litli drengurinn okkar fer sko sínar eigin leiðir, við erum svo búin að reyna síðan hann var pínu pons að vera ákveðin við hann og láta hann hlýða okkur, en það hefur gengið brösuglega kannski með tilliti til þess að hann er langyngstur og eini drengurinn á bænum, en hann er líka mjög hvatvís og skemmtilegur. Hann var snemma byrjaður að klifra upp á flest allt sem hann komst upp á og hræddi mömmu sína mikið, ég sagði sko oft að mér hafi kannski bara ætlað að verða bara stelpumamma því þær voru ekki svona fjörugar, en ég er heppin að fá að eignast þennan gullmola, hann hristir aðeins upp í okkur gömlu og heldur okkur ungum. Á tæpum sólarhring tókst honum að sulla í stórum polli með leðju og þar af leiðandi  að bleyta og drulla út tvenna strigaskó,stígvél,  þrenna pollagalla og fleiri fleiri fötum og sokkum, trekk í trekk, þó að það væri útskýrt og lesið yfir honum að hann mætti sko ekki fara aftur í pollinn. Sunnudagurinn endaði því hjá honum á nærbuxunum uppi í rúmi fljótlega eftir hádegi og hann grét yfir því að mega ekki fara út og leika með vinum sínum. Ég held að þarna hafi hann farið að skilja eitthvað í þessu loksins. Hjúkk, hann hlýtur að vera að þroskast, hann hefur líka dáldið lent í að vera stjórnað af einum vini sínum, sem er ekki gott. Svo benti tengdamamma okkur á það að það sem þessi kvöl hefur þurft að þola undanfarið er kannski smá skýring á þessari óþekkt sem ég hef verið að kvarta yfir upp á síðkastið.

Sko, fyrir ári síðan fluttum við í nýjan bæ og hann byrjaði á nýjum leikskóla, svo byrjuðum við að byggja og það hefur álag í för með sér.

Svo er það blokkarlífið, það var nú ekki mikið hægt að vera þar úti að leika.

Fleiri breytingar  voru afi Baldur var ekki lengur í þessu lífi í maí og er hann ekki alveg að skilja að hann komi ekki aftur, held að það hafi meiri áhrif á hann en það virðist vera.

Svo voru það flutningar ofan á allt álagið við byggingu og sorgina og ekki nóg með það að við búum í mjög litlu rými þar sem hann á ekki einu sinni dóta horn og er hann sífellt að búa sér til pláss og hús hér og þar sem hann má ekki, dótið hans er mikið ofan í kössum þar sem það er ekkert mikið pláss til að dreifa því hér.

Svo núna í ágúst þá flutti hann á nýja leikskólann sem var verið að byggja með nýju starfsfólki í bland og fleiri nýjum krökkum, (sex deilda leikskóli)

En það yndislegasta er að hann hefur getað verið mikið úti að leika hér í nýja hverfinu og á vini hér í næstu húsum sem heita: Fríða, Gylfi og Sölvi.

Þannig að nú erum við vonandi að ná tökum á þessu öllu saman Wink og skiljum hvernig í öllu liggur. 

Þvottavélin á heimilinu bilaði fyrir nokkrum dögum, en sem betur fer kom maður og skipti um kol í mótornum og er hún komin í lag, og fyrir ykkur sem munið eftir stóra snúrustaursmálinu  þá er hér komin þessi fína hringsnúra hér, en það á reyndar eftir að grafa holu til að steypa staurinn niður, jibbí. Svo komu flísarnar sem fara utan á húsið áðan, þannig að það er allt að gerast, við búin að vera að mála þakkantinn hvítan, gaman að þessu öllu.

Jæja nóg komið að kveldi 4. september 2008.

Frúin í skúrinni á snúrunni                                                                        


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband