Söknuður

Mér finnst ég varla heill, né hálfur maður,
og heldur ósjálfbjarga, því er verr.
Ef værir þú hjá mér, vildi ég glaður
verða betri en ég er.

Eitt sinn verða allir menn að deyja
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja
að sumarið líður allt of fljótt.

Við gætum sungið, gengið um,
gleymt okkur hjá blómunum,
er rökkvar, ráðið stjörnumál,
gengið saman hönd í hönd,
hæglát farið niðrað strönd.
Fundið stað,
sameinað
beggja sál.

Horfið er nú sumarið og sólin
í sálu minni hefur gríma völd.
Í æsku léttu ís og myrkur jólin,
nú einn ég sit um vetrarkvöld.

Því eitt sinn verða allir menn að deyja.
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það, en samt ég verð að segja,
að sumarið líður allt of fljótt.

Ég gái út um gluggann minn.
hvort gangir þú um hliðið inn.
Mér alltaf sýnist ég sjái þig.
Ég rýni út um rifurnar,
ég reyndar sé þig alls staðar,
þá napurt er.
Það næðir hér
og nístir mig.

Vilhjálmur Vilhjálmsson

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Addý mín og fjölskyldan öll.

Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Megi Guð veita ykkur styrk til að takast á við það sem framundan er. Ég ætla að hringja í þig í kvöld.

Bestu kveðjur, Sóley Vet.

Sóley Vet (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 12:36

2 identicon

Elsku Addý mín og fjölskylda.

Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra.

Helga Salóme (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 15:55

3 identicon

Elsku Addý, sendi þér og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur. 

Minning um góðan mann lifir.  Guð veri með ykkur. 

Sigga Ragna

Sigríður Ragna Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 16.5.2008 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband