Og svo er hljótt

Yndislegur texti tileinkaður pabba mínum, fjölskyldu og vinum mínum sem hafa verið í þessum sporum. Takk fyrir fallegar kveðjur blóm og hugsanir elsku vinir.

Hvernig stóð á því

Að loginn slokknaði svo fljótt

Og kólguský dró fyrir sól?

Stórt er spurt, en svarafátt

Stundum virðist allt svo kalt og grátt.

Þá er gott að ylja sér við minninganna glóð,

Lofa allt sem ljúfast var meðan á því stóð

 

En það er ótrúlegt

Hve vindur getur snúist alveg ofurskjótt.

Og svo er hljótt.

Allt sem var og allt sem er.

Eftirleiðis annar heimur hér.

Það er sagt að tíminn muni græða hjartasár

En sársaukinn þó hverfur tæpast alveg næstu ár

 

Ó, þau sakna þín.

En þau þakka fyrir það að hafa fengið að

Eiga með þér þetta líf

 

Því fær enginn breytt sem orðið er.

Og öll við verðum yfirleitt að taka því

Sem að ber að höndum hér.

Sama lögmálið hjá mér og þér

En það er gott að ylja sér við minninganna glóð

Lofa allt sem ljúfast var meðan á því stóð

 

Ó, þau sakna þín.

En þau þakka fyrir það að hafa fengið að

Eiga með þér þetta líf

 

(Lag: D.Gates, texti: S. Hilmarsson)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þórdís Einarsdóttir

Elsku Addý mín og fjölskylda.

Sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur á þessari sorgarstundu. Minningin um góðan mann lifir áfram.

Kveðjur

Þórdís 

Þórdís Einarsdóttir, 17.5.2008 kl. 10:28

2 Smámynd: Helga Aðalsteinsdóttir

Elsku  Addý og fjölskylda

Sendi  ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. 

Kveðja að vestan Helga Aðalsteins 

Helga Aðalsteinsdóttir, 17.5.2008 kl. 13:34

3 identicon

Elsku Addý og fjölskylda

Sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Kær kveðja

Lína

Sigurlína Jónasdóttir (IP-tala skráð) 17.5.2008 kl. 15:57

4 Smámynd: Arndís Baldursdóttir

Takk elsku Þórdís, Helga og Lína, það er svo gott að fá svona kveðjur, gott að eiga góða að.

Arndís Baldursdóttir, 18.5.2008 kl. 00:15

5 identicon

Elsku Addý mín fallegar tvær síðustu færslur hjá þér. Ég votta ykkur öllum samúð mína og hugsa mikið til þín og þinna. Veistu ég man að ég hlustaði mikið á söknuð með Vilhjálmi fyrir 19 árum, svo rosalega fallegt, en minning um góðann mann mun lifa áfram í ykkur öllum. Knúsaðu alla frá mér og svo má Gylfi knúsa þig fyrir mig elsku besta vinkona. kveðja Hanna Mjöll

Hanna Mjöll (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 21:55

6 identicon

Elsku fjölskylda.

Ég er mikið búin að reyna að finna eitthvað frábært til að skrifa hér en ekkert dottið í hug fyrr en ég mundi alltíeinu speki sem ég las einu sinni í Spámanninum ,, Þegar þú ert sorgmæddur Skoðaðu þá aftur huga þinn Og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín." Samúðarkveðjur og knús  

Tinna (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 22:45

7 identicon

Elsku Addý mín, Gylfi, Andrea, Fríða Rún og litli prins Baldur Freyr.  Ég er búin að hugsa svo mikið til ykkar eftir að ég fékk þessar sorgarfréttir.  Við Bikki vottum ykkur öllum dýpstu samúðar.  

Ég hringi í þig elsku vinkona,

Saknaðarkveðja

Gabríela

Gabríela (IP-tala skráð) 18.5.2008 kl. 22:55

8 identicon

Elsku fjölskylda ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðar kveðjur

Indíana

Indíana (IP-tala skráð) 19.5.2008 kl. 00:52

9 Smámynd: Heiðrún Björk Jóhannsdóttir

Þó ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum,

hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta.

Ég er svo nærri, að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn þið mig haldið.

En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug,

sál mín lyftist upp í mót til ljóssins.

Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur

og ég, þó látinn sé, tek þátt í gleði ykkar

yfir lífinu.

Hugsa til ykkar elsku Addý mín, Gylfi, Andrea,

Fríða Rún og Baldur Freyr.

Kveðja Heiða og fjölskylda.

Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 19.5.2008 kl. 15:38

10 identicon

Elsku Addy min

Eg sendi ykkur minar innilegustu samudarkvedjur. Gud veri med ykkur og gefi ykkur styrk.

Kaer kvedja

Gudrun Anna

Gudrun Anna (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 08:58

11 identicon

Elsku Addý,

Ég rakst á síðuna þína og þá sé ég þessar sorgarfréttir.

Sendi þér og þínum mínar innilegustu samúðarkveðjur kæra skólasystir.

Kær kveðja, Anna Málfríður.

Anna Málfríður (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 11:49

12 identicon

Þó í okkar feðrafold

falli allt sem lifir,

enginn getur mokað mold

minningarnar yfir.

Erum með hugann hjá ykkur öllum, kæru vinir.

Gréta og co (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 14:00

13 identicon

Elsku Addý.

Ég sit hér heima og er með hugann hjá ykkur. Ég veit að það er erfitt að horfa fram á við því nú er allt svo breytt. En þið eruð svo rík að eiga góðar minningar um ljúfar stundir með frábærum pabba og afa og það verður aldrei frá ykkur tekið. Hugsaðu um ykkar dýrmætu samveru síðustu misseri og þann viðbótartíma sem þið fenguð saman af því að þú fluttir suður.

Ég sendi mínar bestu kveðjur til ykkar allra og ég lofa því að taka vel á móti henni Andreu minni þegar hún kemur aftur á Eyrarskjól.

Vonandi get ég aðeins fengið að hitta þig þegar ég kem suður á næstu helgi.

Þín Sóley

Sóley Vet (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 15:22

14 identicon

Elsku Addý mín og fjölskylda. Hugur minn er búinn að vera hjá ykkur í dag.  Ég finn ekki nógu góð orð til að hughreysta þig eða sýna samúð mína.  Þetta er ólýsanleg tilfinning að missa einhvern nákominn sér.  Það er ekkert sem fyllir það tómarúm sem myndast.  Sagt er að tíminn lækni öll sár, en þau gróa aldrei.  Maður lærir bara að lifa með þeim.  Þessi texti í laginu sem Stefán Hilmarson samdi þegar vinafólk hans missti litla dóttur sína segir allt sem segja þarf.  Hér kemur smá texti út því lagi sem er svo fallegur.

Því fær enginn breytt sem orðið er.

Og öll við verðum yfirleitt að taka því

Sem að ber að höndum hér.

Sama lögmálið hjá mér og þér

En það er gott að ylja sér við minninganna glóð

Lofa allt sem ljúfast var meðan á því stóð

Ó, þau sakna þín.

En þau þakka fyrir það að hafa fengið að

Eiga með þér þetta líf

 

Þín vinkona Gabríela

Gabríela (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 23:33

15 identicon

Elsku Addý, Gylfi, Andrea, Fríða Rún og Baldur Freyr

Við sendum ykkur okkar innilegust samúðarkveðjur, megi drottinn blessa ykkur og styrkja í sorginni. 

Bestu kveðjur

Magga, Halli, Marta Kristín og Stefán Óli

Magga Óla (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband