9.6.2008 | 10:09
"Helgarfríið" búið
Helgin var góð, fjölskyldu- og vina verðlauninþessa helgi hlýtur ein manneskja: Herdís, hún var mætt snemma á laugardaginn tilbúin í að lyfta og plötum með okkur í bílskúrsloftið, sem við hjónakornin kláruðum svo í gær. Bílskúrinn er orðin tómur og tilbúinn til spörslunar og málunar og flísalagningar
Meira seinna í dag, vonandi
Blómið
Athugasemdir
Þið getið þá farið að flytja í bílskúrinn bráðum
Sjáumst fljótlega
Drápuhlíðardrottningin
Heiðrún Björk Jóhannsdóttir, 9.6.2008 kl. 10:32
já vonandi getum við það, allavega í síðasta lagi eftir 20 daga .
Bískúrsdrottningin á Klöpp
Arndís Baldursdóttir, 9.6.2008 kl. 10:49
Á ég þá að koma með sparslspaðann?
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 9.6.2008 kl. 14:45
Svona eiga bloggvinir að vera, Þórdís mín, ég fer nú ekki fram á að þú mætir, nema að þú vorkennir okkur svo mikið að standa í þessu, nýbúin sjálf. Við erum að reyna að fá strákana sem sparsla fyrir okkur til að taka bílskúrsloftið líka, sparslið á veggina er langt komið.
Svo ætla ég að hætt að væla og fara að vinna, svo þið eigið ekkert von á miklum skrifum hér inn fyrr en guð veit, nóg að gera framundan og netleysi í lok mánaðar sökum flutninga.
Blómið
Arndís Baldursdóttir, 9.6.2008 kl. 18:13
Auðvitað vorkenni ég ykkur alveg hrrrrikalega. Og fæ samviskubit yfir að vera ekki að hjálpa til. Kannski ég finni óheyrilega þörf fyrir bíltúr upp á Skaga og þá kannski kippi ég vinnugallanum með. Maður veit aldrei!
Og það má sko alveg kvarta smá þegar menn standa í svona stórræðum. Þetta er nú einu sinni heilt hús!
Þ
Þórdís Einarsdóttir, 9.6.2008 kl. 23:04
Endilega komdu í bíltúr upp á Skaga, þó ekki væri nema til að skoða slotið og okkur .
Arndís Baldursdóttir, 10.6.2008 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.