Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008
28.6.2008 | 22:46
Ég er frjáls eins og fuglinn
Ég er búin að bíða í heilt ár eftir þessum degi , ég er ekki lengur leigjandi í blokk hinna agalausu, ó mæ, lífið hefst í dag. Við fengum heilan her ættingja á fimmtudaginn og skófluðum út úr íbúðinni, allt nema rúm og nokkra stóla. Svo komu vinir okkar Gestur og Hrafnhildur í gær og það var vaknað fyrir kl. 9 í morgun og stein-rúmin flutt með pompi og prakt með góðri hjálp flutningabíls frá nágrönnunum sem eru líka að flytja í dag úr blokk hinna agalausu eða agalegu . Þegar klukkan var orðin 15:15, var gengið út út blokkinni með aulaglott á vörum, við Hrafnhildur þrifum okkur hægt og bítandi út úr íbúðinni með hjálp á lokasprettinum frá Árna og Hrefnu. Undraefnið Cif (gamla góða Jif) var komið vel niður í hálfan brúsa, búið að þrífa vel og vandlega eins og okkar er von og vísa, og það væri verra ef það væri betra, svo vel var skilið við íbúðina, bæði með þrifum og málningu, takk allir sem hjálpuðu okkur með einhverjum hætti með þrifum eða barnapössun, þið eruð yndisleg.
Við vorum akkúrat í ár í blokkinni, fínasta ár þannig séð, fínar íbúðir. En nú er búið að hreiðra um sig í bílskúrnum fína, búið að stúka af svefnherbergi, sjónvarpskrók og borðstofu, flott og fínt.
Takk fyrir öll kommentin, gaman að heyra frá ykkur.
Við erum ekki með net, táningnum til mikillar armæðu, en það kemur seinna.
Það byrjaði ekki vel: Við flutningana braut ég húsið hans Majasar og fengum við lánað bráðabirgðaskál hjá Herdísi, hjúkk að Majas var ekki í húsinu þá. ég fer eftir helgi í leit að nýrri skál.
Skál fyrir því .
Yfir og út.
Blómið sem stökk upp úr vatninu í dag og er að róta sig í nýjum jarðvegi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
25.6.2008 | 11:18
Alveg að klárast
Verkin hér í íbúðinni eru senn að klárast, en verkin í nýja húsinu eru ekki að klárast, orkan fer bráðum að klárast hjá okkur, en þetta hlýtur að hafast fyrir rest. Allir kassar farnir upp í hús og flestir litlir hlutir líka, ég og Herdís erum búnar að fara örugglega 6 ferðir í gær og fyrradag, svo vorum við Dizzy búnar að fara með eitthvað líka. Fólk er farið að spyrja mig: hvar er maðurinn þinn ? Af því að það sér hann ekkert í þessum pakka að bera út dótið, það heldur örugglega að við séum skilin eða eitthvað ........ha ha ha, á meðan hann er í púlar og púlar í húsinu.
Við áttum sko 8 ára brúðkaupsafmæli í gær, Herdís átti afmæli í fyrradag og ég átti afmæli daginn þar á undan. svo eigum við G----, 20 ára kærustuparaafmæli 5. ágúst n.k. Við sem erum svo kornung.
Staðan er þannig að við ætlum að flytja í bílskúr, herbergi forstofu og baðherbergi, en það á eftir að setja í loftin, og flísaleggja baðið og forstofuna, bílskúrinn er eins og flottasta stofa, málaður og flísalagður.
Stefnt er að því að ljúka flutningum á laugardaginn og mála þá leiguíbúðina, úfffff hvað verður gott þegar það er búið.
Þetta er gaman.
Blómið sem fer í umpottun um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.6.2008 | 14:27
Bráðum kemur ekki betri tíð, því betri getur tíðin ekki orðið
Ég er að fyllast af orku og nota aðdráttaraflið mikið þessa dagana, sé fyrir mér flutning sem gengur hratt og vel, eins og framkvæmdir í húsinu, kassarnir fyllast og raðast upp heima hjá mér, vá hvað þetta gengur allt í einu vel. Áfram svona takk, 11 dagar eftir í blokkinni og allt að verða tómt jibbí.
Og stjörnuspáin eftir því :
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.6.2008 | 00:36
Allt í himnalagi
Ég hef ákveðið að lífið sé yndislegt, allt verður í himnalagi, ég er hætt að stressa mig á þessu öllu saman, ég ætla að njóta lífsins þó að það sé strembið og mikið að gera framundan. Hættum þessu kjaftæði og ..............................
Og botnið þið nú ......
Blómið sem ætlar að fá sér áburð og skíta í lófana ,og hleypa krafti í sig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.6.2008 | 10:09
"Helgarfríið" búið
Helgin var góð, fjölskyldu- og vina verðlauninþessa helgi hlýtur ein manneskja: Herdís, hún var mætt snemma á laugardaginn tilbúin í að lyfta og plötum með okkur í bílskúrsloftið, sem við hjónakornin kláruðum svo í gær. Bílskúrinn er orðin tómur og tilbúinn til spörslunar og málunar og flísalagningar
Meira seinna í dag, vonandi
Blómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.6.2008 | 23:33
Og þá er að bretta upp handleggina
Nú er lag................eitthvað æðislegt lag, við höfum sko sannarlega fundið fyrir því að við eigum fullt af vinum og góðu fólki í kringum okkur, takk elsku vinirnir okkar fyrir stuðninginn og allar kveðjurnar kortin og skeytin .
Við auglýsum hér með eftir vinum og kunningjum sem vilja hjálpa okkur að komast nær markmiði mánaðarins, þ. e. að ná að klára sem mest í húsinu fyrir lok þessa mánaðar, einhverju sinni sagði maður að maður ætti fáa vini þegar maður er að byggja og eins þegar maður flytur, nú látum við reyna á þetta. Vegna alls konar atvika bæði erfiðum og ekki, höfum við ekki náð að vera komin eins langt í húsinu og við vonuðumst til, staðreyndin blasir við............við verðum nánast á götunni 4ra manna fjölskylda og búslóð í lok þessa mánaðar, við getum ekki framlengt leigunni meir og höfum í raun ekki áhuga á því vegna mikillar hækkunar, við þurfum að vera búin að pakka og mála eftir c.a 26 daga .
Elsku vinir ef þið sjáið lausa stund til að koma látið okkur endilega vita fyrirfram svo við getum verið undirbúin með efni ofl.
Brettum upp handleggina og skítum í lófana he he . Ég lofa ykkur stóru og flottu innflutningspartýi .
Jæja ég ætla að fara að lesa meira í bókinni góðu, The Secret og vita hvernig ég get dregið að mér orku og alls konar hjálp.
Blómið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)