Færsluflokkur: Bloggar
13.9.2008 | 15:40
Tónlist í blóðinu
Hjá mér er tónlist lífið, ég þrífst ekki nema hafa tónlist, ég er með sérvalda tónlist í bílnum, í vinnunni hlusta ég á www.tonlist.is vel mér lagalista og spila öll uppáhalds íslensku lögin mín samhliða vinnunni og ef það er álag í tölvuskráningu hjá mér vinn ég best við ákveðin lagalista. Heima reyni ég svo að hlusta á tónlist eins oft og færi gefst og þegar ég fer út í göngutúr er það tónlistin sem keyrir mig áfram. Ég verð bensínlaus ef ég hef ekki tónlist. Svo hef ég auðvitað verið að syngja, en ekki mikið undanfarið.
Mig hefur lengi dreymt um að vera með svona umfjöllun um lög hér á bloggsíðunni minni eins og t.d. lag dagsins eða vikunnar, eða texti, eða flytjandi. Ég spái í þetta og á örugglega eftir að drífa í því fljótlega.
Man einhver eftir þessum goðum sem ég dýrkaði?
Modern Talking þessar elskur Thomas Anders, Dieter Bohlen.
Og svona breyttust þeir og litu út 2003:
Sætir samt.
Tónlistarfíflið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.9.2008 | 12:04
Á hjólum
Barnavagnatíska er eitthvað sem mér finnst gaman að fylgjast með, ef ég væri með nýfætt barn og væri hrikalega efnuð (glætan spætan) þá mundi ég örugglega eiga svona fjóra vagna og fjórar kerrur. Þessi áhugi minn á þessum farartækjum er held ég meðfæddur, ég t.a.m. settist fyrst undir stýri og ók nærri því niður litlu bröttu Urðarvegsbrekkuna á milli tveggja og þriggja ára aldurs. Svo þegar mamma fór að kaupa stundum pöntunarlistana eins og Quelle og Freemans þá voru einu síðurnar sem ég lá í að skoða voru síðurnar með barnavögnunum og kerrunum. Þannig að snemma beygist krókurinn og ég elska bíla og barnavagna. Skrítin skrúfa ég.
Ég á núna einn vagn sem er orðinn bráðum 18 ára gamall og er hann í upprunalegum kassa og er tekinn upp og bónaður reglulega. Þetta er hann:
Svo á ég þessa kerru líka:
Og líka þessa:
Ég ætla að geyma þetta allt saman á meðan ég hef pláss.
Skrítna skagastúlkan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.9.2008 | 13:05
Kan jeg stole po dig
Vá, ég ætla að kaupa borðstofuborð þegar ég flyt inn í dýrðina, því ég á ekki borð (borðið okkar skemmdist í flutningi og brotnaði að hluta núna í júní), ég er búin að finna draumaborðið og svo er útsala á stólum á sama stað og ég er heit fyrir því að skella mér á stóla líka, það er nú ekki eins og við eigum einhverjar mublur, fólk er hissa á hvað búslóðin okkar rúmast vel í bílskúrnum með okkur, enda eru það bara tveir sófar og kassar og dót.
Hvað finnst þér?
Hér er borðið http://egodekor.is/item.php?iditem=48
Svo eru það stólarnir, þeir verða með ljósum fótum.
Stóll 1: http://egodekor.is/item.php?iditem=312
Stóll 2: er að spá í ljósan svona http://egodekor.is/item.php?iditem=320 eða á ég að fá mér brúnan ?
Stóll 3: http://egodekor.is/item.php?iditem=101
Snilldar búð.
Mér finnst stóll nr. 1 mjög flottur en ég er eitthvað smeyk við að fá leið á tölunum
Hvað finnst þér ? Kostir og gallar ?
Brjálaða Bína
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
8.9.2008 | 23:01
Innskot
Hej
Ég ætlaði bara að láta ykkur vita að það eru komnar nýjar myndir á www.barnanet.is/baldurfreyr fyrir ykkur sem vitið lykilorðið.
Myndir af fyrsta skápnum í húsinu og hurðum ofl.
Forstofa Litla bað í forstofu
Blomst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.9.2008 | 21:36
Blanko
Var búin að skrifa langa og flotta færslu um helgina, er farin í fýlu af því að ég rak mig í einhvern takka og allt fór út.
Ætla að jafna mig.
Er svekkt, en ég hlýt að fá skrif-andann yfir mig aftur seinna.
Nenni ekki meiru í kvöld.
B
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.9.2008 | 14:34
Aldur og ævi
Þessi mynd af mér á að hafa verið tekin af mér árið 1958, mér finnst ég alveg svakalega lík mömmu á þessari mynd.
Algjör snilld, svo er hér önnur frá 1996
Og ein i viðbót frá 1986
Prófaðu bara sjálf/ur http://yearbookyourself.com/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.9.2008 | 23:18
Dagbókarfærsla frá mömmu Emils í Kattholti
"Guð hjálpi mér með þennan dreng" Eitthvað á þessa leið skrifaði mamma Emils á sínum tíma í ævintýrinu. Ég er oft að grínast með þetta og segi þetta líka. Litli drengurinn okkar fer sko sínar eigin leiðir, við erum svo búin að reyna síðan hann var pínu pons að vera ákveðin við hann og láta hann hlýða okkur, en það hefur gengið brösuglega kannski með tilliti til þess að hann er langyngstur og eini drengurinn á bænum, en hann er líka mjög hvatvís og skemmtilegur. Hann var snemma byrjaður að klifra upp á flest allt sem hann komst upp á og hræddi mömmu sína mikið, ég sagði sko oft að mér hafi kannski bara ætlað að verða bara stelpumamma því þær voru ekki svona fjörugar, en ég er heppin að fá að eignast þennan gullmola, hann hristir aðeins upp í okkur gömlu og heldur okkur ungum. Á tæpum sólarhring tókst honum að sulla í stórum polli með leðju og þar af leiðandi að bleyta og drulla út tvenna strigaskó,stígvél, þrenna pollagalla og fleiri fleiri fötum og sokkum, trekk í trekk, þó að það væri útskýrt og lesið yfir honum að hann mætti sko ekki fara aftur í pollinn. Sunnudagurinn endaði því hjá honum á nærbuxunum uppi í rúmi fljótlega eftir hádegi og hann grét yfir því að mega ekki fara út og leika með vinum sínum. Ég held að þarna hafi hann farið að skilja eitthvað í þessu loksins. Hjúkk, hann hlýtur að vera að þroskast, hann hefur líka dáldið lent í að vera stjórnað af einum vini sínum, sem er ekki gott. Svo benti tengdamamma okkur á það að það sem þessi kvöl hefur þurft að þola undanfarið er kannski smá skýring á þessari óþekkt sem ég hef verið að kvarta yfir upp á síðkastið.
Sko, fyrir ári síðan fluttum við í nýjan bæ og hann byrjaði á nýjum leikskóla, svo byrjuðum við að byggja og það hefur álag í för með sér.
Svo er það blokkarlífið, það var nú ekki mikið hægt að vera þar úti að leika.
Fleiri breytingar voru afi Baldur var ekki lengur í þessu lífi í maí og er hann ekki alveg að skilja að hann komi ekki aftur, held að það hafi meiri áhrif á hann en það virðist vera.
Svo voru það flutningar ofan á allt álagið við byggingu og sorgina og ekki nóg með það að við búum í mjög litlu rými þar sem hann á ekki einu sinni dóta horn og er hann sífellt að búa sér til pláss og hús hér og þar sem hann má ekki, dótið hans er mikið ofan í kössum þar sem það er ekkert mikið pláss til að dreifa því hér.
Svo núna í ágúst þá flutti hann á nýja leikskólann sem var verið að byggja með nýju starfsfólki í bland og fleiri nýjum krökkum, (sex deilda leikskóli)
En það yndislegasta er að hann hefur getað verið mikið úti að leika hér í nýja hverfinu og á vini hér í næstu húsum sem heita: Fríða, Gylfi og Sölvi.
Þannig að nú erum við vonandi að ná tökum á þessu öllu saman og skiljum hvernig í öllu liggur.
Þvottavélin á heimilinu bilaði fyrir nokkrum dögum, en sem betur fer kom maður og skipti um kol í mótornum og er hún komin í lag, og fyrir ykkur sem munið eftir stóra snúrustaursmálinu þá er hér komin þessi fína hringsnúra hér, en það á reyndar eftir að grafa holu til að steypa staurinn niður, jibbí. Svo komu flísarnar sem fara utan á húsið áðan, þannig að það er allt að gerast, við búin að vera að mála þakkantinn hvítan, gaman að þessu öllu.
Jæja nóg komið að kveldi 4. september 2008.
Frúin í skúrinni á snúrunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.8.2008 | 12:44
Meðsöngsýning Mamma Mia í kvöld
Ég var að lesa Morgunblaðið í hádeginu og sá þá að það verður haldin MEÐSÖNGSÝNING (Sing along) sýning í stóra salnum í Háskólabíói í kvöld og Selma og Hansa verða forsöngvarar.
Miiiig langar að fara............veit ekki hvort ég eigi að láta það eftir mér, ég er alltaf að keyra þessi blessuðu Hvalfjarðargöng.
Hver vill koma með mér ??????
Syngjandi blómið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.8.2008 | 09:28
Hægviðrið og trampólínin
Ég er ekki hissa á því að þessi tvö trampólín hafi fokið aðeins, það voru góðar hviður í nótt, þetta er ein ástæðan af hverju ég hef ekki fest kaup á trampólíni hér enn, finnst allt svo opið og óvarið hér miðað við kósý gamla garðinn í fjallasalnum. Ekki er hægt að segja að fjöllin séu ofan í manni hér þó svo að þau séu oftar í fjölmiðlum, Esjan, Akrafjall og Hafnarfjall. En ég hef alltaf sagt að það sé bara eitt fjall á Íslandi, þetta er allt tengt saman bara mismunandi hátt allt saman.
Blóm í vindi
Trampólín fuku á Akranesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2008 | 15:38
Honey honey, how you thrill me, ah-hah, honey honey
Halló góðir hálsar, afsakið bloggletina, ég hef verið önnum kafin við hitt og þetta og með smá flensu og ýmislegt.
Það sem ég ætlaði að segja er að ég fór á myndina Mamma Mia loksins á sunnudaginn 17. ágúst 2008. Vá...vá....vá...vá....vá......................það var sko búið að vara mig við að hún væri akkúrat fyrir mig þessi mynd...
..eins og til dæmis: ég fékk sms frá einni góðri sem var svona: Var að sjá Mamma Mia, hugsaði til þín, æðisleg mynd.
Svo var vinur okkar sem kom heim um daginn og sagði: ég var að frétta skandal um þig, nú sagði ég? Já ég frétti að þú værir ekki búin að sjá Mamma Mia..............hann hélt að svona áhugasöngkonur og Pollýönnur sæju myndina með þeim fyrstu. Hann ætlaði að láta mig vita ef það yrði önnur sing-along sýning.
Myndin í heild var æðisleg ég var að fíla hann rosalega vel, flottir leikarar og mér fannst þær Meryl Streep og Amanda Seyfried alveg æðislegar, Meryl hefur nú alltaf verið í uppáhaldi hjá mér síðan í den er hún lék í Heartburn http://www.imdb.com/media/rm263036160/tt0091188 þar sem lagið sígilda http://www.youtube.com/watch?v=5VvBEUIjiAc&feature=related hljómaði svo eftirminnilega.
Stórkostlegt fannst mér að sjá Dancing Queen atriðið, það minnti mig á uppákomu sem við saumaklúbbur nokkur settum upp, karaoke atriði fyrir mennina okkar í partýi og við stóðum upp í hjónarúmi (allar nema ein sem lá fyrir framan okkur) það var sko flott atriði, stelpur munið þið ?
Læt hér fylgja með myndband frá You Tube, þar sem bestu lögin eru sýnd úr myndinni. http://www.youtube.com/watch?v=v3yIVk61160&feature=related
Uppáhaldslagið mitt úr myndinni er auðvitað Honey honey.
Spáið þið í það hvað ABBA gaf okkur mörg geggjuð lög ?
Hárið er fínt fyrir þá sem eru að spá í það, ég fór í klippingu til Sillu og ég læt fljótlega mynd inn.
Allir eru glaðir.
Heyrumst
Mamma Mia
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)