Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
27.10.2008 | 00:14
Helgarlok
Þessi helgi var bara fín, frumburðurinn okkar kom fljúgandi á miðvikudag og fer vestur á morgun, gaman að hafa hana í heimsókn. Við vorum rosalega dugleg um helgina, settum upp í loftin á tveimur herbergjum, og þá er hægt að klára að sparsla og svo er það málning og svo parket og skápar, svo ráðumst við inn. Við erum að gera þetta allt sjálf og berjum okkur á brjóst í tíma og ótíma og segjum: Við getum þetta .
Við prófuðum að halda smá jól í bílskúrnum í kvöld, húsbóndinn eldaði jólamat fyrir frumburðinn og okkur hin, en mikið sakna ég uppþvottavélarinnar, vá hvað var mikið að vaska upp eftir 5 manns og potta og pönnur eftir jólamatseldina. Við vonum að við verðum komin í stærra rými þegar alvöru jólin skella á. Ég er mikið jólabarn og finnst aðventan og allt það yndislegur tími. Spurning hvenær maður nái að skrifa á jólakortin, þarf að fara að gefa því tíma á milli málningarumferða.
Heyrumzt síðar.
Bjartsýna blómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.10.2008 | 09:36
Andleysi
Andinn er ekki yfir mér þessa dagana, en það eru 64 dagar til jóla , nú verðum við að fara að bretta upp handleggina og skíta verulega í lófana fyrir lokasprettinn: Í kofann fyrir jólin
Vinnan hefst í kvöld.
Sjálfboðaliðar velkomnir, við borgum í matarboðum og skemmtilegheitum eftir að innflutningi lýkur.
Það var gott að pústa aðeins um helgina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.10.2008 | 14:26
Nú passar allt
Ég sem hélt ég væri í álögum
bölva og ragna mínum örlögum
aldrei mun ég efast um það framar
Augnablik ég hélt að væru gleymd
Spegilbrotin mynda eina heild
Allt sem var í sundur fer nú saman
Allt sem var í fyrstu á móti mér
Allt sem var svo flókið fyrir mér
Nú passar það
allt sem að
ég taldi vera tilviljanir einar
small saman
leysti gátuna
Nú passar það
allt saman
og ég varð að ganga í gegnum það
til að enda hér
hér á þessum stað
Texti af plötunni Allt fyrir ástina með Páli Óskari
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2008 | 23:21
Tegunda-árátta
Ég fattaði í dag hvernig ég get verið skrítin, ég geng framhjá raftækja og gjafavörubúð þegar ég fer úr vinnunni og út í bíl á daginn. Stundum standa raftæki í umbúðum fyrir utan þessa búð. Ég stóð mig að því að byrja strax að leita að nafni eða merki, það stóð eitthvað AV-040 eða eitthvað svoleiðis, og hugsaði: þetta hlýtur að vera AEG, svo leit ég nánar á umbúðirnar og þá sé ég að þetta er eitthvað annað merki, mig minnir að það hafi verið Indesit eða eitthvað svoleiðis, þetta sá ég á minni hraðferð frá vinnu út í bíl og ég stoppaði ekki við. Ég tek það fram að ég er ekki merkja-snobbari fyrir fimm aura, en ég verð alltaf að vita hvaða tegund þetta er, hvort sem um er að ræða heimilistæki, bíla, kerrur og barnavagnar eða bara fólk, ég hef rosa gaman að því að spá í hvernig tegund af fólki þessi og hinn er og er flink í að greina það oftast. Ég man eftir því að mamma og systir mín voru alltaf að segja við mig þegar ég var yngri að ég ætti að hætta að glápa svona á fólk, þær skömmuðust sín stundum fyrir mig hvað ég mændi á fólk. Ég er bara mjög fróðleiksfús á þetta allt saman og hef gaman að.
Ég bíð spennt eftir því að geta rifið utan af heimilistækjunum mínum öllum og byrjað að skoða og fikta.
Ótilgreind tegund af blómi
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.10.2008 | 10:03
Bleikur dagur
Það er bleikur dagur hjá mér í dag, ég fletti í gegnum 24 stundir í morgun og sá auglýsingu, bleiki Toppurinn (sódavatn), með hindberjabragðinu, vá hvað hann er flottur svona bleikur og þessi bleiki litur er svo yndislega fallegur. Ég hef alltaf verið svakalega bleik manneskja, ég fór aðeins út í gærkvöldi og fór þá í bleiku flíspeysuna mína. Svo í morgun eftir sturtuna setti ég smá skvett að bleika ilmvatninu Pink Sugar, namm....hún er svo góð fyrir svona bleikar stelpur. Október fer bara að verða uppáhalds mánuðurinn minn.
Ég kom sem sagt við í sjoppu í morgun og keypti mér tvo bleika Toppa með hindberjabragði.
Þó að maður sé ennþá sem betur fer of ungur til að fara í brjóstakrabbameinsleit (myndatöku) tvö ár í það , ég finn til með þeim konum sem hafa þurft að ganga í gegnum það að fá krabbamein og fólki yfirleitt.
Ég keypti líka bleiku slaufuna, voða flott.
Nóg komið að bleiku bulli.
Bleika blómið
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.10.2008 | 12:52
Biblía krepputíðar gefin út af L.Í. árið 2003
Nú er að taka fram bókina litlu sem Landsbankinn gaf okkur
Sparibók Landsbankans var gefin út í janúar 2003, já þeir hafa vitað þetta allan tímann, þetta er eitt stórt samsæri allt saman, eins og Spaugstofumenn sögðu hérna um árið. Mörg eru hollráðin í þessari bók, t.d.
Nr. 065 Í hvað eyðirðu mestum peningum, hvernig geturðu dregið úr þeim kostnaði, án hvers geturðu komist?
Nr. 063 Taktu vasareikni með þér í búðina.
005: Oft má drýgja sjampó og sápur um 1/3 án þess að það komi niður á hreinlætinu.
008: Tómar djúsfernur má nota sem sparibauka.
013: Lifðu einföldu lífi. Að hjóla sparar peninga og bensín og er ókeypis líkamsrækt. Lestu bók í stað þess að leigja mynd eða leiktu við börnin.
031: Þótt mjólkin og rjóminn séu rétt skriðin yfir síðasta söludag ma´nota hvort tveggja í súpur án þess að það komi niður á gæðunum.
037: Tættu niður ostaenda og frystu. Notaðu þá síðan í gratín.
038: Notaðu álpappírinn aftur.
046: Vatn er besti svaladrykkurinn.
047: Borgaðu reikningana á réttum tíma og forðastu óþarfa kostnað.
048: Gerðu sparnaðinn að leik. Geturðu komist af með fimm hundruð krónur á dag? Jafnvel ekkert?
055: Notaðu bókasöfnin! Þau lána þér ekki bara bækur, heldur líka geisladiska og tölvuleiki. Þar geturðu líka blaðað frítt í tímaritum og komist á Netið.
063: Taktu með þér vasareikning í búðina.
084: Skipuleggðu útréttingar. Betra er að stoppa nokkrum sinnum í einni ferð en fara margar stuttar ferðir.
127: Það kostar ekkert að senda SMS á netinu.
Nr. 043 Þú getur sparað þér eldhúsrúllukaup ef þú ert með nóg af viskastykkjum og tuskum í eldhúsinu.
Nr. 014 Ekki henda stökum sokkum. Þeir eru ágætir ryk- og afþurrkunarklútar
Nr. 009 Ekki henda gamla sturtuhenginu. Það má nota það sem hlífðarplast næst þegar þú málar.
Nr. 010 Ekki henda dagatali síðasta árs. Þú getur klippt það niður og notað sem merkimiða á pakka eða skrifað aftan á það. stærri dagatöl er hægt að lakka og nota sem glasa- og diskamottur.
Nr. 130 Taktu með þér popp í bíó. Þú getur tekið með þér aukaskammt og reynt að selja næsta manni svolítið af því. ó mæ.
Nú verður maður að fara að lesa hana betur, kannski það séu til svona bækur á lager ennþá í einhverjum útibúum ?
Ég geymdi a.m.k. mitt eintak, Landsbankakonan ég
Já nú verður maður bara að fara að lifa eftir þessu öllu saman. Allir að spara . Algjör snilldarbók.
Hluti af þessari færslu er gamall frá því í apríl, en mér fannst alveg tilvalið að koma með þetta aftur og ég kem svo með fleiri ráð úr bókinni í næsta bloggi.
Lifið heil og munum að vera bjartsýn og spila með, það er ekkert annað í boði.
Spariblómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 23:27
Vinsældarlisti Rásar 2, árið 1986
Ég á gamla stílabók sem ég skrifaði vinsældarlista Rásar 2, frá janúar 1986, og lista yfir vinsælustu lög ársins 1985, svo hélt ég áfram að skrifa ekki alveg allt árið en nokkuð mikið og svo vinsælustu lög ársins 1986.
Ég hef leitað á netinu að þessum vinsældarlista og ekki fundið, en hér koma vinsælustu lög á Rás 2 árið 1986.
30. King for a day/Thompson Twins
29. The sun always shine on TV/ A-ha
28. Lessons in love/Level 42
27. Allur lurkum laminn/Bubbi Morthens
26. Önnur sjónarmið/ Edda Heiðrún Bachman
25. Absolut Beginners/David Bowie
24. Waiting for the morning/Bobby Socks
23. Live to tell/Madonna
22. When the going gets tough.../Billy Ocean
21. Þrisvar í viku/Bítlavinafélagið
20. How will i know/Whitney Houston
19. Living doll/Cliff Richards and the young....
18. Hunting high and low/Aha
17. You can call me Al/Paul Simon
16. System Addict/Five star
15. Papa don´t preach/Madonna
14. Braggablús/Bubbi Mortens
13. True blue/Madonna
12. Lady in red/Chris De burgh
11. Glory of love/Peter Cetera
Topp tíu
10. Götustelpan/Pálmi Gunnarsson
9. I just died in your arms/Cutting Crew
8. Gull/Eiríkur Hauksson
7. Ég vil fá hana strax/Greifarnir
6. Little girl/Sandra
5. La líf/Smartbandið
4. Gleðibankinn/Icy tríóið
3. La isla bonita/Madonna
2. Hesturinn/Skriðjöklar
1. Gaggó Vest/Eiríkur Hauksson
Svona var það 1986......
Takk fyrir mig.
Eighties blómið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.10.2008 | 23:27
Herðapúðapopparar Arndízar
Hljómsveitin A-HA
Hljómsveitin frá Noregi sem er skipuð Morten Harket, Paul Waaktaar-Savoy og Magne Furuholmen. Þeir voru æðislegir og flott lögin þeirra.
Morten er fæddur 14. september 1959.
Take on me var held ég fyrsta lagið þeirra sem þeir slógu í gegn með. Svo fær maður svona kitl í magann þegar maður heyrir nafnið: The Sun Always Shines on T.V. Ég man nú ekkert sérstaklega eftir lögum með þeim en vissi alltaf af þeim. Og ég hef sko nokkrum sinnum sungið Take on me í Sing Star og náð öllum tónunum, því þetta er furðu erfitt lag, bæði farið hátt og lágt.
Rosalega flott myndbandið við það lag http://www.youtube.com/watch?v=RMWXyEHoN88
Maður fær plastbak af þessu myndbandi: http://www.youtube.com/watch?v=B1pb1IZcaiQ
Ekki má gleyma laginu Hunting High and Low, yndislegt lag.
Mér finnst Ingó í Veðurguðunum frekar líkur Morten.
Svona lítur Morten út í dag, flottur
Þá er þessu lokið vona að þið hafið haft gaman að.
Tónlistarplantan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.10.2008 | 12:07
Flottur dagur í dag þrátt fyrir veðrið
Það er afmælisdagur í fjölskyldunni minni í dag, duglegi og góði maðurinn minn á afmæli í dag og ætlum við að hafa smá "kaffi" fyrir þá sem droppa inn, ég get því miður ekki bakað köku fyrir hann en ætla að styrkja Brauða og kökugerðina enn einu sinni í dag. Ættingjar og vinir eru velkomnir í svarta húsið á horninu.
Sjáumst
Ps. ég er búin að finna gamla bók sem nördinn ég skrifaði 1986 upp úr útvarpi Vinsældarlista Rásar 2, þetta er fjársjóður, ég ætla að birta nokkra lista bráðum hér, með næsta poppara. Það fer alveg að koma að því, ég lofa. (alltaf svo mikið að gera)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)